20.9.2007 | 00:19
Norður
Ég lagði í hann á sunnudagsmorguninn. Aldrei þessu vant hafði ég sett eitthvað af fötum ofan í tösku kvöldið áður, endurnærður eftir Ian Anderson. Ég tek alltaf mikið af fötum og drasli með mér ef ég skrepp bæjarleið og fjölskyldan hlær alltaf jafnmikið að mér. Svo fór ég í kassettuhauginn góða og greip handfylli af snilld til að hafa í bakhöndinni. Stígvélin og gönguskórnir biðu í bílnum, til í slaginn. Og ég lagði af stað. Ég verð alltaf óþreyjufullur áður en ég held af stað norður, verð jafnvel skapvondur, rek á eftir fjölskyldunni og geng um gólf. En nú var ég einn á ferð svo það var bara ég til að reka á eftir. Þegar ég renndi svo framhjá Þingvallaafleggjaranum setti ég sjálfstýringuna á og leið áfram. Áður en ég vissi af nálgaðist ég Borgarnes og datt ekki í hug að stoppa fyrir puttalingum sem norpuðu í kantinum við Borgarfjarðarbrúna. Tónlistarvalið var til fyrirmyndar. Það var danskt í þetta sinn, Jomfru Ane Teatret, Lone Kellerman, Röde Mor og Savage Rose. Ég hefði ekki getað boðið puttalingunum upp á að hlusta á þetta alla leiðina. Þeir hefðu klikkast. En ég klikkaðist ekki, skánaði bara. Því að hlusta á plötuna Wild Child frá árinu 1976 með Savage Rose er engu líkt. Söngkonan Annisette alveg tryllt og Þeir Koppel-bræður... Já segi ekki meir... Svona leið þessi ferð, greip andann á lofti á Holtavörðuheiðinni þegar hallaði norðuraf, fékk slyddu á mig í Víðidalnum, slapp við Blönduóslögguna (enda á krúsinu), veifaði Stebba G. á Stapanum og hringdi í tengdó og sagði henni hvað Glóðafeykir væri fallegur. Þar með kominn í Blönduhlíðina og renndi í hlað, móðir mín á tröppunum og fagnaði týnda syninum og skellti laxi í pottinn. En frammi í afrétt voru gangnamenn að koma að og brátt yrði safnið rekið til réttar. Ég var í stuði.
Athugasemdir
Frábær lýsing - alla vega var ég með þér í bílnum - þó þú hafir ekki séð mig.........
Ingibjörg Gunnarsdóttir, 20.9.2007 kl. 09:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.