27.7.2007 | 22:26
Kominn í bæinn...
Kominn í bæinn og búinn að borða ágætan sjóbirting og litla bleikju sem ég veiddi í þeirri ágætu á Urriðaá vestur á Mýrum. Urriðaá er rétt vestan við Langá og þegar ég sá hana fyrst vildi ég kalla hana læk eins og maður var vanur að kalla vatnsföll af hennar stærðargráðu. En hún leynir á sér og það var ekki leiðinlegt á fimmtudaginn að fylgjast með löxunum sem sveimuðu neðst í ánni og veltu fyrir sér hvort óhætt væri að leggja í hann upp ána. Nokkrir höfðu þegar lagt í hann og dóluðu í lítlum hyl en svöruðu ekki kalli okkar félaga þrátt fyrir að við legðum okkur alla fram. En sjaldan hefur maður séð jafn lítið vatn í ánni og núna. En við prufum aftur seinni partinn í ágúst svo hver veit. Sjóbirtingurinn var fínn á bragðið en fjölskyldan var nú ekkert upprifin, enda búið að kenna henni að eini silungurinn sem sé ætur sé silungur úr Héraðsvötum sem er auðvitað rétt en maður lætur sig hafa ýmislegt og verður gott af. Annars er allt gott og meiri hugleiðingar um silung seinnna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
24.7.2007 | 00:24
Tilraun
Þetta er tilraun... Ég bjó til bloggsíðu í einhverju æðiskasti og ætlaði svosem ekki að skrifa neitt, en nú stend ég mig að að stara á þessa bloggsíðu mína og skilja ekkert í af hverju ekkert er skrifað á hana og ekkert að gerast. En nú finn ég að þetta er allt að gerast! Búinn að eignast bloggvin meira að segja Takk Ingólfur frændi. (Enda vorum við pennavinir þegar við vorum ungir drengir fyrir norðan fyrir tíma gróðurhúsaáhrifa) Það rigndi í borginni í kvöld svo vonandi veður laxinn upp í árnar á Mýrunum í nótt því stöngin bíður spennt og flugurnar eru klárar og ég sjálfur er nokkuð hress og mun leggja í hann í fyrramálið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)