Færsluflokkur: Bloggar
9.10.2007 | 00:35
"Ég er á vesturleiðinni..."
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.10.2007 | 00:44
Miðnætti
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
7.10.2007 | 01:13
Síðasta lag fyrir fréttir
Laugardagsmorgnar eru góðir. Ef maður nær að vakna sæmilega snemma, elda hafragraut og lesa blöðin er maður nokkuð góður. Í dag var þetta tekið á hundavaði af því ég þurfti að mæta í vinnu eftir hádegi. Ég bíð oft spenntur eftir hvað er í lesbók Moggans. Og hvað fann ég þar? Jú, Stefán Íslandi átti hundrað ára afmæli í gær, 6. okt. Hann er að vísu dáinn blessaður, en samt;hundrað ár eru hundrað ár. Hver var þá Stefán Íslandi? Það er best að lesa lesbókina til að komast að því, en ég man þegar ég var lítill þá fannst mér þetta vera eini Skagfirðingurinn sem var frægur. Á einhvern hátt skynjaði ég frægðina, þó fullorðna fólkið talaði bara um Stebba litla. Og svo meðan ég fékk mér skyr undir tilkynningum á undan fréttum á Gufunni varð ég viss. Þeir klikka ekki á þessu. Stebbi fær að syngja síðasta lag fyrir fréttir. Ég borðaði skyrið og beið. Og hlustaði. Og svo kom lagið. Og það var rétt lag. Ökuljóð. Ég hlustaði og skyrið var óhreyft á meðan. "Stefán Íslandi söng" sagði látlaus þulurinn og endaði á að segja frá því að upptakan væri frá 1937. Það hefur margt gerst síðan. En, ..."Áfram veginn..."
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
4.10.2007 | 00:41
B-hliðin
Ég held að b-hliðin á Abbey Road sé sú plötuhlið sem ég hef oftast hlustað á. Frá upphafi til enda. Án þess að stoppa. Það voru eiginlega helgispjöll að stoppa. Eins og að slökkva á þjóðsöngnum í miðju kafi. Ég sat í gærkveldi og hofði á albúmið. Horfði á þessa mynd af fjórum mönnum á gangbraut. Horfði á þessa menn sem breyttu lífi manns. Horfði svo og hlustaði á Egil tala við Einar Má Jónsson í sjónvarpinu. Mér fannst Einar flottur. Hann hefur verið búsettur fjölda ára í París, en talaði eins og hann hefði aldrei farið neitt. Mesta lagi drukkið kaffi á Kaffi París. Ég dró líka fram ljóðabækur Jónasar Svafár og setti á náttborðið:
það blæðir úr morgunsárinu
móðir lífs er moldin enn / og málið vex á lýðsins tungu / ganga aftur gamlir menn / gráhærðir með frosin lungu
dagsins morgunn er draumasár / dauðinn sefur í beinum dýra / þungt vatn blæðir í húð og hár / og hugsjónir í gaddavíra
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
3.10.2007 | 00:09
Gangbraut
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.9.2007 | 23:30
Að stjórna landinu - helgarpistill
Það fer oft mikill tími um helgar í blaðalestur. Sá í Lesbókinni að Matthías Jó. er með ljóðabók á netinu. Gaman hugsaði ég, því akkúrat núna er ég með eina ljóðlínu eftir hann í hausnum. Hún er úr bókinni sem ég keypti í Krónuhúsinu um daginn... "og þá er einsog þögn við vatnið syngi / og þú sért minning fugls um vatn sem deyr". Fallegt. Ég les líka alltaf dagbók Þráins í Fréttablaðinu og er allur betri á eftir. Til dæmis kveikti hann í mér í dag. Hann sagðist stundum skilja eftir á förnum vegi bækur sem hann væri búinn að lesa svo aðrir gætu notið þeirra líka. Þetta fannst mér sniðugt. Ég hugsaði með mér að nú ætti ég að taka bók sem ég væri búinn að lesa og labba niður í Grjótaþorp og banka uppá hjá Þráni og segja: "Hér er bók sem ég er búinn að lesa." Svo hugsaði ég meira. Hvaða bók? Og komst að raun um að ég myndi aldrei tíma að gefa bók sem ég ætti! Svona er maður skrítinn. En allt þetta kom mér til að hugsa: Af hverju gerir maður ekki stundum eitthvað óritskoðað? Svo kom það skyndilega án nokkurs undirbúnings eða hugsunar:
Eftir ísbíltúr í dag var ég að keyra framhjá Alþingishúsinu og sé Össur ráðherra á leið í bílinn sinn. Hann var að tala í símann. Alltaf mikið að gera hjá þessum ráðherrum hugsa ég. Um leið og ég renni fram hjá ráðherrabílnum og Össur er að setjast undir stýri sé ég að afturhurðin farþegamegin er hálfopin. Og það skipti engum togum, ég negli niður og snarast út, opna afturhurðina hjá ráðherranun, hann í símanum og hrekkur við við þessa innrás. Ég segi: "Hurðin var ekki alveg lokuð" og skellti aftur hurðinni á ráðherrabílnum, veifaði og stökk upp í minn bíl og hvarf vestur í bæ. Þannig að í dag hef ég staðið mína plikt og hjálpað til við að stjórna landinu með því að spara tíma ráðherrans. Hver þekkir það ekki að þurfa að fara út úr bílnum aftur þegar maður fattar að ljósið í mælaborðinu segir: "Opin hurð"!! En hvað Össur hugsar veit ég ekki.
Fór síðan beint á bókamarkaðinn í gamla Krónuhúsinu og keypti nokkrar ljóðabækur. Já ég veit það. Mér er ekki viðbjargandi. Heimsótti svo tengdó og við skoðuðum gamlar myndir, m.a. af ungum mönnum í vegavinnu norður í landi á þeim árum Þegar menn brúkuðu hest og kerru. Og það minnir mig á það að eftir því sem ég best veit er hesturinn sem hvarf í Tröllaskagann ófundinn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
29.9.2007 | 19:37
Hundar á spjalli
Í útvarpinu (rás 1) er hundur, Þ.e.a.s. þáttur með þeim félögum Eiríki og Hjörleifi sem eru dúettinn "Hundur í óskilum". Þátturinn er á laugardögum kl.18.30 (endurfluttur á þriðjudagskvöldum). Þetta hljómar eins og dagskrárkynning, en átti ekki að vera það. Ég sat úti í bíl áðan og komst ekki inn með kvöldmatinn því þeir félagar héldu mér föstum með sögum og söng. Þeir voru eiginlega ekki komnir úr réttunum ennþá. Í lokin sungu þeir þó um "aðalgjaldkerann ástvinalausa í erlendri milljónaborg". Svo það er ykkur að kenna "hundarnir ykkar" ef fjölskyldan verður dauð úr hungri áður en kvöldmaturinn er tilbúinn. En ég heyrði að það tíðkast enn fornir réttarsiðir í Svarfaðardal, sem nú eru löngu aflagðir í Akrahreppi. Þar setja menn bara undir sig hausinn og draga sitt fé. Sem sagt; þessi hundur er algjört metfé.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.9.2007 | 23:28
Fjörið blikar...
Fjörið blikar augum í,
aldrei hik í spori.
Lundin mikil, hrein og hlý,
hlaðin kviku þori.
Þessi vísa eftir Bjarna afa minn kemur hér til að minna mig á að ég hef aldrei komið í Laufskálarétt. Þetta er líka góð vísa. Og hér set ég mér markmið: Laufskálarétt að ári! Og svo er smá spurning óskyld réttum. Hvernig stendur á því að Húsavík er allt í einu komin í Norðurþing? Ég bara kann ekki við þetta.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
27.9.2007 | 23:52
Fullt tungl
Bloggar | Breytt 28.9.2007 kl. 00:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.9.2007 | 22:57
Bókamarkaður
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)