Það gengur mikið á

Það lá eitthvað í loftinu í síðustu viku

 

Í Silfri Egils tóku svo leikar að æsast:

 

                        Nú turtildúfur taka niður hringa

                        og torgin litast rauð – svo fellur tárið.

                        Með hnífasett í bakinu frá Binga

                        blæðir flokki út í morgunsárið.

 

En þetta var nú ekkert, því svo kom mánudagur:

 

                        Hjá Kjarval gamla klæmdist D í skjóli

                        því kreistur var nú burtu vinstri safinn.

                        Og dreyminn stóð með danskortið hann Óli

                        daginn sem að Bobby F. var grafinn.

 

                        Og brímafullir blossar hylltu traustið

                        en brosin voru treg að koma’ í fansinn.

                        Því svipurinn var sami og um haustið

                        er sviptivinda-Bingi kvaddi dansinn.

 

                        Og núna situr Dagur dapur heima

                        og döpur sitja Svandís, Bingi’ og Magga.

                        Í hundrað daga hálfpartinn að dreyma

                        hlunnfarin nú gráta úti’ í bragga.

 

                        Og vaski gamli Villi er með Óla

                        valdataflið er til enda leikið.

                        Í hjólförunum hagsmunirnir spóla

                        og halastjarnan þurrkar af sér meikið.

 

Og svo er kominn þriðjudagur:

 

                        En Bobby sagði bless við landið kalda

                        nú brosa aðrir heimar – býsna stórir.

                        Í Laugardælum lunkinn var að valda

                        og leikur núna kóngspeð Einar fjórir.

                       


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Mikið lifandis skelfing eru þetta glæsilegar vísur hjá þér, Eyþór! Ekki vissi ég að þú værir svona gott skáld.

En svo lengi lærir sem lifir... 

Lára Hanna Einarsdóttir, 22.1.2008 kl. 23:41

2 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Mikill andskotans snillingur ertu kall.  Það er engu líkara en Skáholts Villi sé mættur í sambræðingi við Jón vorn Helga á Árnasafni.  Þetta ætla ég að linka á að óspurðu.

Jón Steinar Ragnarsson, 23.1.2008 kl. 00:57

3 Smámynd: Vilborg Valgarðsdóttir

Frábært Eyþór, meira svona

Vilborg Valgarðsdóttir, 23.1.2008 kl. 12:14

4 identicon

Ég vissi ekki að þú værir farinn að blogga gamli félagi. Ég þarf að fylgjast með þessu, þú ert soddan snillingur. Way to go. Steini.

Þorsteinn Guðmundsson (IP-tala skráð) 23.1.2008 kl. 20:55

5 Smámynd: Árni Gunnarsson

Svona á að taka það!

Árni Gunnarsson, 23.1.2008 kl. 21:53

6 Smámynd: Hallmundur Kristinsson

Góður!

Hallmundur Kristinsson, 23.1.2008 kl. 23:44

7 Smámynd: Eyþór Árnason

Takk fyrir að líta inn. En nú er Björn Ingi hættur svo það er best að fara varlega og kveða í hljóði. 

Eyþór Árnason, 24.1.2008 kl. 21:50

8 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Björn Ingi er ekki hættur. Hann gegnir forystu í borgaráði. Er nokkur leið að skilja þennan dreng. Er hann hættur í pólitík eða hættur að svíkja undan skatti eða bara hættur að ganga í jakkafötum?  Hann loðir enn við eins og skötubrælan og ætlar ekki að gefa sig, enda hefur hann verk að vinna fyrir Alfreð.

Jón Steinar Ragnarsson, 24.1.2008 kl. 22:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband